Barnaaugnlækningar — augnskoðun barna í Mjódd

Á Augnlæknastofunni í Mjódd tökum við á móti börnum á öllum aldri. Augnlæknir og sjónfræðingur sinna augnskoðun, gleraugnamælingu og eftirliti barna. Engin tilvísun þarf og skoðun hjá augnlækni er greidd af Sjúkratryggingum Íslands.

Engin tilvísun
Þú bókar beint hjá okkur.
Greitt af SÍ
Að undanskildum tveimur rannsóknum.
Um 1,5 klst
Gott að gera ráð fyrir tímanum.
Hvenær?

Á hvaða aldri á barn að fara í augnskoðun?

Börn eru velkomin í augnskoðun á hvaða aldri sem er. Sérstaklega mikilvægt er að skoða börn yngri en 8 ára, því sjónin er enn að þroskast á þeim árum.

Á þessu tímabili er hætta á letiauga (amblyopia). Letiauga er best að greina og meðhöndla snemma, meðan sjónin er enn í mótun.

Ástæður til að panta tíma

  • Auga leitar inn á við eða út á við
  • Barnið pírir augun eða hallar höfðinu til að sjá
  • Barnið heldur bókum eða skjám mjög nálægt sér
  • Höfuðverkur eða þreyta í augum við lestur
  • Erfiðleikar við lestur
  • Letiauga, rangeygð eða sterk gleraugu í fjölskyldunni
Það sem við skoðum

Greining og meðferð augnvandamála hjá börnum.

Letiauga

Auga sem hefur ekki náð fullri sjón. Best að greina og meðhöndla meðan sjónin er enn að þroskast.

Rangeygð

Þegar augun horfa ekki í sömu átt. Getur haft áhrif á sjónþroska og dýptarskyn.

Nærsýni

Óskýr sjón í fjarlægð. Fylgst er með þróuninni eftir því sem barnið vex.

Fjarsýni

Getur valdið þreytu og óþægindum við lestur og nærvinnu.

Sjónskekkja

Óskýr eða bjöguð sjón, bæði nálægt og í fjarlægð.

Gleraugnamæling

Nákvæm mæling á sjónlagi og ráðgjöf um gleraugu.

Lestrarerfiðleikar

Vandi í samvinnu augna getur gert lestur erfiðan. Sjónþjálfun hjá sjónfræðingi getur hjálpað.

Starfsfólk

Hjá hverjum er barnið skoðað?

Helgi Davíð Björnsson

Augnlæknir

Fyrrverandi yfirlæknir barnaaugnlækninga við Oslo Universitetssykehus. Augnlæknir hjá Sjónlagi 2019–2026. Augnlæknir á Augndeild Landspítala með áherslu á augnsjúkdóma barna og fyrirbura síðan 2019. Sérfræðingur hjá Augnlæknastofunni í Mjódd frá 2026.

Zuzana Rutenberg

Sjónfræðingur

Hefur starfað sem sjónfræðingur og sjónþjálfi í Ísrael og við Augnlæknastofuna í Mjódd frá 2006. Sérhæfir sig í sjónþjálfun, þar sem unnið er að eðlilegri samvinnu augna og heila. Meðlimur í NORA, BOAF, EAOO og Félagi íslenskra sjóntækjafræðinga.

Spurt og svarað

Algengar spurningar foreldra.

Þarf tilvísun fyrir augnskoðun barns?

Nei. Engin tilvísun þarf. Þú bókar tíma beint hjá okkur.

Hvað kostar augnskoðun barns?

Skoðun barna hjá augnlækni er að fullu greidd af Sjúkratryggingum Íslands. Undantekningar eru öxullengdarmæling (4.900 kr) og sneiðmynd af hornhimnu (8.900 kr), sem falla utan samningsins. Verð fyrir tíma hjá sjónfræðingi má sjá í verðskrá.

Hvað tekur skoðunin langan tíma?

Gerið ráð fyrir um 1,5 klukkustund fyrir komuna.

Hvernig bóka ég tíma fyrir barn?

Best er að bóka í netbókun, sem er opin öllum aldurshópum. Einnig er hægt að hringja í síma 587 2344 á símatíma.

Hver er biðtíminn?

Áætlaðan biðtíma barna hjá augnlækni má sjá á forsíðunni. Hægt er að vera á biðlista ef tími losnar fyrr.